Frá Sýslumanninum á Norðurlandi eystra; Umsagnarbeiðni tækifærisleyfi - Hestamannafélagið Hringur v. dansleiks

Málsnúmer 202409081

Vakta málsnúmer

Byggðaráð - 1121. fundur - 19.09.2024

Lilja Guðnadóttir vék af fundi undir þessum lið kl.15:25 vegna vanhæfis og tók ekki þátt í umfjöllun og afgreiðslu.

Með fundarboði byggðaráðs fylgdi erindi frá Sýslumanninum á Norðurlandi eystra, dagsett þann 16. september sl., þar sem meðfylgjandi er umsókn um tækifærisleyfi frá Lilju Guðnadóttur vegna stóðréttadansleiks 5. október nk.
Óskað er umsagnar sveitarfélagsins.
Byggðaráð gerir ekki athugasemdir við að umbeðin leyfi sé veitt, með fyrirvara um umsagnir frá slökkviliðsstjóra og Heilbrigðiseftirliti Norðurlands eystra.
Lilja Guðnadóttir tekur ekki þátt i umfjöllun og afgreiðslu vegna vanhæfis.