Frá Þröster ehf.; Fjárhagsáætlun 2025; CDalvík - styrkur/samstarf - frítt í sund fyrir iðkendur

Málsnúmer 202408052

Vakta málsnúmer

Byggðaráð - 1117. fundur - 22.08.2024

Tekið fyrir erindi frá Snæþóri Arnþórssyni fyrir hönd Þröster ehf. eiganda og rekstraraðila CDalvík, móttekið þann 19. ágúst sl., þar sem óskað er eftir samstarfi við Dalvíkurbyggð til að geta boðið iðkendum hjá fyrirtækinu frítt í sund. Með því getur CDalvík aukið þjónustu sinna korthafa mikið.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 2 atkvæðum að hafna ofangreindu erindi.
Helgi Enarsson tekur ekki þátt í umfjöllun og afgreiðslu vegna vanhæfis.