Frá deildarstjóra Eigna- og framkvæmdadeildar; Beiðni um viðauka vegna frágangs gangstétta í Hringtúni

Málsnúmer 202406109

Vakta málsnúmer

Byggðaráð - 1113. fundur - 27.06.2024

Tekið fyrir erindi frá deildarstjóra Eigna- og framkvæmdadeildar, dagsett þann 24. júní sl., þar sem óskað er eftir viðauka við fjárhagsáætlun 2024 vegna frágangs á gangstéttum í Hringtúni.Óskað er eftir viðauka við fjárhagsáætlun að upphæð kr. 4.200.000 á deild 32200-11900 og að honum verði mætt með lækkun á handbæru fé.

Helga Íris vék af fundi kl. 14:16.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreinda viðaukabeiðni, viðauka nr. 25 við fjárhagsáætlun 2024, að upphæð kr. 4.200.000 á deild 32200-11900.
Byggðaráð samþykkir jafnframt að viðaukanum verði mætt með lækkun á handbæru fé.