Málsnúmer 201801018Vakta málsnúmer
Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga hvetur sveitarstjórnir landsins til að ræða leiðir gegn kynferðisofbeldi og áreitni í stjórnmálum og á vinnustöðum sveitarfélaga. Var á stjórnarfundinum einnig bent á nauðsyn þess að öll sveitarfélög setji sér formlega stefnu og viðbragðsáætlun vegna eineltis, ofbeldis og kynferðislegrar og kynbundinnar áreitni enda sé slík hegðun ólíðandi með öllu. Voru þau sveitarfélög sem ekki hafa gert slíkt, hvött til að nýta sér sem fyrirmynd stefnu og viðbragðsáætlun sambandsins.
Á fundi ráðsins sat þroskaþjálfanemi Margrét Gunnarsdóttir en vék af fundi undir trúnaðarmálum.