Starfsfólk í heimilisþjónustu
Félagsþjónusta Dalvíkurbyggðar óskar eftir að ráða starfsmenn í sumarafleysingar í 70% -100% stöðuhlutfall til að sinna heimilisþjónustu. Vinnutími er frá 8-16 virka daga. Umsækjendur þurfa að hafa náð 18 ára aldri og hafa bíl til umráða. Unnið er samkvæmt hugmyndafræði um þjónandi leiðsögn og sjálfstætt líf.
Helstu verkefni:
- Einstaklingsmiðuð persónuleg þjónusta við íbúa, sem miðar að því að leiðbeina og aðstoða einstaklinga við athafnir daglegs lífs, heimilishald og dagleg störf varðandi húshald eftir því sem þörf krefur.
- Hvatning og stuðningur til sjálfshjálpar og félagslegrar virkni, innan og utan heimilis.
- Heimilisþrif.
- jákvæð og uppbyggileg samskipti við þjónustunotendur, aðstandendur og samstarfsfólk.
Hæfniskröfur:
- Áhugi og færni að starfa með fólki.
- Ábygðarkennd, hlýlegt viðmót, sveigjanleiki, samviskusemi, umhyggja og góð hæfni í mannlegum samskiptum.
- Íslenskukunnátta.
- Frumkvæði, jákvæðni í starfi sem og sjálfstæð vinnubrögð.
- Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur.
- Bílpróf.
Ofangreindar hæfniskröfur eru ekki í áhersluröð.
Við ráðningu er jafnréttissjónarmið jafngild öðrum málefnalegum sjónarmiðum og hvetjum við áhugasama að sækja um, óháð kyni og uppruna. Vakin er athygli á að þörf er á fleiri körlum til starfa á verksviðinu. Greitt er samkv. kjarasamningi Sambands ísl. sveitarfélaga og Kjalar.
Með umsókn skal skila ferilskrá og kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjenda. Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir um að sækja um starfið á Íbúagátt á heimasíðu Dalvíkurbyggðar (undir umsóknir > Atvinnuumsóknir > Atvinnuumsókn - Sumar 2023 - Starfsfólk í heimilisþjónustu).
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Upplýsingar gefur Eyrún Rafnsdóttir félagsmálastjóri hjá félagsþjónustu Dalvíkurbyggðar, í tölvupósti á netfangið eyrun@dalvikurbyggd.is eða í síma 460-4900
Umsóknarfrestur er til og með 13.mars 2023.