Tengiliður skal vera aðgengilegur öllum börnum og foreldrum og hefur hann viðeigandi þekkingu til að vera innan handar og aðstoða við að sækja viðeigandi þjónustu við hæfi. Þannig geta foreldrar og börn leitað til eins aðila sem hefur yfirsýn yfir allt þjónustukerfið.
Öll börn og foreldrar skulu hafa aðgang að tengilið eftir því sem þörf krefur. Foreldrar og börn skulu hafa aðgang að upplýsingum um hver sé tengiliður í nærumhverfi þeirra og skulu milligöngulaust geta leitað aðstoðar hans. Tengiliður hefur viðeigandi þekkingu til að geta verið foreldrum og barni innan handar. Hann ráðleggur þeim og aðstoðar við að rata í gegnum kerfið og sækja þjónustu við hæfi. Tengiliður er starfsmaður mismunandi þjónustuveitenda eftir æviskeiðum barns.
Á meðgöngu og á ungbarnaskeiði er tengiliður barns starfsmaður heilsugæslu, t.d. ljósmóðir eða hjúkrunarfræðingur í ungbarnavernd. Þegar barn hefur leikskólagöngu er tengiliðurinn í leikskóla barnsins, t.d. deildarstjóri eða sérkennslustjóri. Þegar barn hefur grunnskólagöngu er tengiliðurinn starfsmaður grunnskólans, t.d. námsráðgjafi, deildarstjóri, þroskaþjálfi eða annar starfsmaður í nærumhverfi barnsins. Ungmenni í framhaldsskólum hafa aðgang að tengilið innan framhaldsskólans, t.d. námsráðgjafa. Ungmenni sem ekki fara í framhaldsskóla eða börn sem á einhvern hátt falla á milli ofangreindra þjónustukerfa hafa aðgang að tengilið hjá félagsþjónustu sveitarfélags.
Tengiliður metur hvort þörf sé á samþættingu þjónustu. Þegar beiðni um samþættingu liggur fyrir getur tengiliður hafist handa við að samþætta þjónustu í þágu farsældar barns. Hlutverk tengiliðar er meðal annars að meta þjónustuþörf, skipuleggja og fylgja eftir þjónustu á fyrsta stigi. Þá kemur tengiliður upplýsingum til sveitarfélags ef þörf þykir á tilnefningu málstjóra. Einnig getur hann tekið þátt í vinnu stuðningsteymis eftir því sem við á.
Hann hefur ávallt hagsmuni barnsins að leiðarljósi og rækir hlutverk sitt í samráði við foreldra og barn. Þannig geta foreldrar og börn leitað til eins aðila sem hefur yfirsýn yfir þjónustukerfið í stað þess að þurfa að fara á marga staði til að leita að slíkum upplýsingum. Barna- og fjölskyldustofa veitir ráðgjöf og fræðslu til tengiliða til þess að þeir geti sinnt hlutverki sínu sem best.
Tengiliðir Dalvíkurbyggðar eru: Dalvíkurskóli: Gunnhildur Birnisdóttir og Elsa Hlín Einarsdóttir Árskógarskóli og Kötlukot: Helga Lind Sigmundsdóttir Krílakot: Bjarney Anna Sigfúsdóttir Heilsugæslustöðin Dalvík: Lilja Guðnadóttir