Framlag ríkisins 2024 vegna barna með fjölþættan vanda og eða miklar þroska- og geðraskanir og eru vistuð utan heimilis á árinu 2024

Málsnúmer 202412014

Vakta málsnúmer

Félagsmálaráð - 284. fundur - 10.12.2024

Tekinn fyrir rafpóstur dags. 04.12.2024 frá Mennta- og barnamálaráðuneytinu. Þar kemur fram að áformað er að veita framlag úr ríkissjóði til að standa straum af hluta kostnaðar sveitarfélaga vegna barna með fjölþættan vanda og/eða miklar þroska- og geðraskanir sem vistuð hafa verið utan heimilis árið 2024 á grundvelli laga nr. 38/2018 um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir. Um er að ræða einskiptisaðgerð vegna ársins 2024.
Lagt fram til kynninar.