Frá íþróttafulltrúa; Samningar við íþróttafélög 2025-2028

Málsnúmer 202411060

Vakta málsnúmer

Byggðaráð - 1131. fundur - 14.11.2024

Lilja Guðnadóttir gerði grein fyrir vanhæfi sínu og vék af fundi við umfjöllun og afgreiðslu kl. 15:21.

Undir þessum lið kom á fund byggðaráðs Jón Stefán Jónsson, íþróttafulltrúi, kl. 15:21.

Með fundarboði byggðaráðs fylgdu drög að styrktarsamningum við íþrótta- og æskulýðsfélög í Dalvíkurbyggð.

Íþróttafulltrúi kynnti forsendur að baki samningunum.


Til umræðu ofangreint.

Jón Stefán vék af fundi kl.15:52.
Lagt fram til kynningar.

Íþrótta- og æskulýðsráð - 167. fundur - 03.12.2024

Samningar við íþróttafélög teknir fyrir ásamt athugasemdum frá þeim félögum sem bárust.
Íþrótta- og æskulýðsráð samþykkir með fimm atkvæðum, samninga við íþróttafélög Dalvíkurbyggðar

Sveitarstjórn - 375. fundur - 17.12.2024

Á 167. fundi íþrótta- og æskulýðsráðs þann 3. desember sl. var eftirfarandi bókað:
"Samningar við íþróttafélög teknir fyrir ásamt athugasemdum frá þeim félögum sem bárust.
Niðurstaða : Íþrótta- og æskulýðsráð samþykkir með fimm atkvæðum, samninga við íþróttafélög Dalvíkurbyggðar."
Til máls tóku:

Lilja Guðnadóttir, sem gerði grein fyrir vanhæfi sínu hvað þennan lið varðar og vék af fundi við umfjöllun og afgreiðslu kl. 16:46.
Helgi Einarsson.
Freyr Antonsson, sem leggur til að sveitarstjórn samþykki styrktarsamning við Ungmennafélag Svarfdæla, með þeirri breytingu að sveitarstjórn samþykkir tilgreinda styrkfjárhæð vegna reksturs gervigrasvallar en vísar í sérstakan samning um rekstur á vellinum sem íþróttafulltrúi er með í vinnslu.

Fleiri tóku ekki til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 6 atkvæðum eftirtalda samninga til 4ja ára, 2025-2028:
Golfklúbburinn Hamar
Ungmennafélag Svarfdæla, með þeirri breytingu að sveitarstjórn samþykkir tilgreinda styrkfjárhæð vegna reksturs gervigrasvallar en vísar í sérstakan samning um rekstur á vellinum sem íþróttafulltrúi er með í vinnslu.
Ungmennasamband Eyjafjarðar.
Ungmennafélagið Þorsteinn Svörfuður.
Skíðafélag Dalvíkur.
Rimar - blakfélag.
Reynir - Ungmennafélag
Hringur- Hestamannafélag.
Rán- Sundfélag.

Lilja Guðnadóttir tekur ekki þátt í umfjöllun og afgreiðslu vegna vanhæfis.