Samantekt af samráðsfundi Eyþings og bréf til sveitarfélaga

Málsnúmer 201810103

Vakta málsnúmer

Byggðaráð - 886. fundur - 08.11.2018

Tekið fyrir erindi frá stjórn Eyþings, rafpóstur dagsettur þann 29. október 2018, þar sem fram kemur að samantekt Alta frá aðalfundi Eyþings er vísað til sveitarfélaga og fundar fulltrúaráðs sem og óskað er eftir að sveitarfélögin á Eyþingssvæðinu taki til umræðu hvert á að vera framtíðarhlutverk landshlutasamtaka og að hugmyndir sem fram koma þar verði lagðar fram til umræðu á fulltrúaráðsfundinum 23. nóvember n.k.

Til umræðu ofangreint.
Lagt fram til kynningar.