Hugrún geðfræðslufélag - beiðni um umfjöllun vegna geðheilsu

Málsnúmer 202004029

Vakta málsnúmer

Félagsmálaráð - 239. fundur - 21.04.2020

Tekið fyrir rafbréf dagsett 03.04.2020 frá Hugrúnu- geðfræðslufélagi. Ný og endurbætt vefsíða Hugrúnar geðfræðslufélagsins hefur verið opnuð. Þar er hægt að nálgast upplýsingar um geðheilsu, geðraskanir og úrræði auk leiðbeininga um hvernig má ræða þessi mál við ungt fólk. Vefsíðan er aðgengileg á íslensku, ensku og pólsku.
Lagt fram til kynningar.