Til afgreiðslu:
3. liður.
4. liður.
5. liður.
6. liður, sér liður á dagskrá.
7. liður.
8. liður.
9. liður.
10. liður.
13. liður, sér liður á dagskrá.
-
Umhverfisráð - 316
Lagt fram til kynningar
Niðurstaða þessa fundar
Lagt fram til kynningar
Bókun fundar
Lagt fram til kynningar.
-
Umhverfisráð - 316
Umhverfisráð vill ítreka við bréfritara að tryggja að ekki stafi hætta eða ónæði af eyðingunni fyrir vegfarendur eða íbúa og gott samstarf sé haft við fyrirtæki og sveitarfélagið.
Niðurstaða þessa fundar
Lagt fram til kynningar
Bókun fundar
Lagt fram til kynningar.
-
Umhverfisráð - 316
Umhverfisráð gerir ekki athugasemdir við umsóknina og felur sviðsstjóra að ganga frá lóðarleigusamningi.
Samþykkt með fimm atkvæðum.
Niðurstaða þessa fundar
Samþykkt
Bókun fundar
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu umhverfisráðs og úthlutun á lóðinni við Lokastíg 6.
-
Umhverfisráð - 316
Umhverfisráð gerir ekki athugasemdir við umsóknina og felur sviðsstjóra að ganga frá lóðarleigusamningi við umsækjanda.
Samykkt með fimm atkvæðum.
Niðurstaða þessa fundar
Samþykkt
Bókun fundar
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu umhverfisráðs og úthlutun á lóðinni við Hringtún 23.
.5
201711004
Umsókn um lóð
Umhverfisráð - 316
Umhverfisráð fellst á framlengingu úthlutunarinnar, en leggur áherslu á að umsækjendur skili inn teikningum samkvæmt gr. 4 í gildandi úthlutunarreglum.
Samþykkt með fimm atkvæðum
Niðurstaða þessa fundar
Samþykkt
Bókun fundar
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofnagreinda afgreiðslu umhverfisráðs og framlengingu á úthlutun lóðarinnar við Skógarhóla 10 um eitt ár samkvæmt settum skilyrðum.
-
Umhverfisráð - 316
Á fundi sínum 19. febrúar 2019 fól sveitarstjórn sviðsstjóra umhverfis- og tæknisviðs að grenndarkynna óverulegt frávik á deiliskipulagi lóðanna Hringtún 17 og 19.
Breytingin fólst í stækkun á byggingarreitum, aukningar á byggingarmagni og að heimilt sé að byggja parhús í stað einbýlishúsa á lóðunum við Hringtún 17 og 19 samkvæmt meðfylgjandi uppdrætti nr. 1 frá arkitektastofunni form ráðgjöf dags. 04.02.2019.
Send voru út grenndarkynningargögn á sjö næstu nágranna og þeim kynnt tillagan og gefinn frestur til að gera skriflegar athugasemdir við tillöguna til umhverfisráðs innan fjögurra vikna, eða til miðvikudagsins 20. mars 2019.
Þann 5. mars 2019 barst sviðsstjóra umhverfis- og mannvirkjasviðs sameiginlegt athugasemdarbréf vegna breytingartillögunnar frá átta næstu nágrönnum Hringtúns 17 og 19.
Megininntak athugasemda nágrannanna lítur að túlkun á 43. gr. skipulagslaga þ.e.a.s. hvort fyrrgreinda breytingartillögu eigi að túlka sem óverulega breytingu sem er grenndarkynnt eða sem almenna deiliskipulagsbreytingu með málsmeðferð skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga. Einnig gera nágrannarnir athugasemdir við breytingu á húsgerðum þ.e.a.s úr einbýlishúsum yfir í parhús. Einnig bárust erindi frá eigendum að Hringtúni 21 og 30 ásamt Miðtúni 3 og 4 þann 14. mars.
Umhverfisráð leggur til að tekið verði tillit til athugasemda nágranna um að eðlilegra sé að breytingartillagan lúti málsmeðferð skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga og verði auglýst sem deiliskipulagsbreyting.
Umhverfisráð telur að almennt séð sé ekki vera grundvallarmun á yfirbragði parhúsa og einbýlishúsa nema að því leyti að hús geta verið ólík í útliti. Væntanlega munu parhús ekki breyta yfirbragði hverfisins svo fremi sem þau verða í svipuðum mælikvarða og sú byggð sem komin er. Aukning umferðar vegna tveggja viðbótaríbúða er óveruleg og breytir ekki stöðu nágranna í neinum grundvallaratriðum.
Umhverfisráðs leggur einnig til að gerðar verði eftirtaldar breytingar á grenndarkynntri tillögu á lóðum nr. 17 og 19 við Hringtún:
1.
Að heildarbyggingarmagn á lóðum nr. 17 og 19 verði aukið úr 260 m² í 300 m².
2.
Að lóð nr. 17 við Hringtún verði stækkuð um 94.3 m² á kostnað lóðar nr. 19.
3.
Að byggingarreitir lóða nr. 17 og 19 við Hringtún séu stækkaðir um 1 m til vesturs.
4.
Að norðurmörk byggingarreits lóðar nr. 17 við Hringtún verði færð um 2 m til suðurs, og verði eftir breytingu 5 m frá norðurlóðarmörkum í stað 3 m.
5.
Að suðurmörk byggingarreits lóðar nr. 17 við Hringtún verði færð til suðurs um 4.2 m.
6.
Að byggingarreit lóðar nr. 19 við Hringtún verði hliðrað um 4.2 m til suðurs.
7.
Að austurmörk byggingarreita verði óbreytt miðað við gildandi deiliskipulag.
Umhverfisráð felur sviðsstjóra að auglýsa deiliskipulagstillöguna í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga með ofantöldum breytingum frá áður grenndarkynntri tillögu.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
Niðurstaða þessa fundar
Lagt fram til kynningar
Bókun fundar
Lagt fram til kynningar, er sér liður á dagskrá.
-
Umhverfisráð - 316
Umhverfisráð felur sviðsstjóra að veita umbeðið leyfi með fyrirvara um jákvæða umsögn slökkviliðsstjóra.
Samþykkt með fimm atkvæðum.
Niðurstaða þessa fundar
Samþykkt
Bókun fundar
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu umhverfisráðs um byggingarleyfi með þeim fyrirvörum sem tilgreindir eru.
-
Umhverfisráð - 316
Umhverfisráð felur sviðsstjóra að veita umbeðið framkvæmdar og byggingarleyfi með fyrirvara um jákvæða umsögn slökkviliðsstjóra.
Samþykkt með fimm atkvæðum.
Niðurstaða þessa fundar
Samþykkt
Bókun fundar
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu umhverfisráðs um framkvæmdar- og byggingarleyfi með þeim fyrirvörum se tilgreindir eru.
-
Umhverfisráð - 316
Það er mat Umhverfisráðs þar sem umrædd breyting snertir ekki aðra en umsækjanda og sveitarfélagið að fyrrgreind stærðarbreyting á lóðunum þremur sé óverulegt frávik skv. 3. mgr. 43. gr. Breytingar á deiliskipulagi í skipulagslögum 123/2010, en þar segir:
„(Við útgáfu framkvæmda- eða byggingarleyfis getur sveitarstjórn heimilað að vikið sé frá kröfum 2. mgr. um breytingu á deiliskipulagi og grenndarkynningu þegar um svo óveruleg frávik er að ræða að hagsmunir nágranna skerðist í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn.2)„
Sviðsstjóra er falið að veita umbeðna breytingu og útbúa nýja lóðarleigusamninga í samræmi við það ásamt því að tilkynna breytinguna til Skipulagsstofnunar.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
Niðurstaða þessa fundar
Samþykkt
Bókun fundar
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu umhverfisráðs og breytingu á lóðarmörkum við Öldugötu 26 og Ægisgötu 29-31 á Árskógssandi.
-
Umhverfisráð - 316
Umhverfisráð samþykkir nýja legur gatnanna og felur sviðsstjóra að leita samráðs við nærliggjandi lóðarhafa að lausnum fyrir reitinn framan við Ungó fyrir næsta fund ráðsins.
Niðurstaða þessa fundar
Samþykkt
Bókun fundar
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu umhverfisráðs um nýja legur gatnanna á gatnamótum Hafnarbrautar, Skíðabrautar og Grundargötu á Dalvík.
-
Umhverfisráð - 316
Umhverfisráð gerir ekki athugasemdir við framlögð gögn og felur svisstjóra að óska eftir viðauka vegna hlutdeildar sveitarfélagsins í hönnun á árinu 2019.
Samþykkt með fimm atkvæðum
Niðurstaða þessa fundar
Lagt fram til kynningar
Bókun fundar
Lagt fram til kynningar.
-
Umhverfisráð - 316
Lagt fram til kynningar
Niðurstaða þessa fundar
Lagt fram til kynningar
Bókun fundar
Lagt fram til kynningar.
-
Umhverfisráð - 316
Umhverfisráð Dalvíkurbyggðar gerir ekki athugasemdir við framlögð gögn.
Samþykkt með fimm atkvæðum.
Niðurstaða þessa fundar
Lagt fram til kynningar
Bókun fundar
Lagt fram til kynningar, er sér liður á dagskrá.
Enginn tók til máls og annað í fundargerðinni þarfnast ekki afgreiðslu sveitarstjórnar, liðir 6 og 13 eru sér liður á dagskrá. Þeir liðir sem ekki þarfnast afgreiðslu eru lagðir fram til kynningar í sveitarstjórn.