Stjórn Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses - 26, frá 14.02.2019
Málsnúmer 1902019F
Vakta málsnúmer
.1
201802004
Undirbúningur framkvæmda- undirritun verksamnings við Kötlu ehf.
Stjórn Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses - 26
Stjórn Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fresta undirritun verksamningsins til föstudagsins 15. febrúar 2019 til að svigrúm sé til að lagfæra minniháttar atriði í skilalýsingu og á teikningum sem aðilar eru sammála um.
Bókun fundar
Undir þessum lið tók til máls Jón Ingi Sveinsson sem gerði grein fyrir vanhæfi sínu hvað varðar liði 16 - 18 og vék af fundi við umfjöllun og afgreiðslu kl. 16:38.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
Fleiri tóku ekki til máls.