Michal Kjartan 2 ára

Michal Kjartan 2 ára

Í dag 26. ágúst varð Michal Kjartan 2 ára og héldum við

upp á afmælið hans í dag hér í Krílakoti. 

Michal Kjartan málaði sér kórónu og flaggaði íslenska fánanum.

Í ávaxtastundinni sungum við fyrir hann afmælissönginn og hann blés á kertin tvö.

Eftir sönginn bauð Michal Kjartan öllum á Skakkalandi uppá ávexti úr ávaxtakörfunni.

Við óskum Michal Kjartani og fjölskyldu hans til hamingju með daginn frá öllum í Krílakoti.