Í dag 26. ágúst varð Michal Kjartan 2 ára og héldum við
upp á afmælið hans í dag hér í Krílakoti.
Michal Kjartan málaði sér kórónu og flaggaði íslenska fánanum.
Í ávaxtastundinni sungum við fyrir hann afmælissönginn og hann blés á kertin tvö.
Eftir sönginn bauð Michal Kjartan öllum á Skakkalandi uppá ávexti úr ávaxtakörfunni.
Við óskum Michal Kjartani og fjölskyldu hans til hamingju með daginn frá öllum í Krílakoti.