Maron 4 ára

Maron 4 ára

 

Í dag 14. mars átti Maron 4 ára afmæli og af því tilefni héldum við upp á daginn hans.

Maron málaði sér kórónu og flaggaði íslenska fánanum. Í ávaxtastundinni sungum við fyrir hann afmælissönginn og hann blés á kertin fjögur.

Eftir sönginn bauð Maron öllum á Skakkalandi upp á ávexti úr afmæliskörfunni.

Við óskum Maroni og fjölskyldu innilega til hamingju með daginn frá okkur öllum á Skakkalandi.