Í dag 14. mars átti Maron 4 ára afmæli og af því tilefni héldum við upp á daginn hans.
Maron málaði sér kórónu og flaggaði íslenska fánanum. Í ávaxtastundinni sungum við fyrir hann afmælissönginn og hann blés á kertin fjögur.
Eftir sönginn bauð Maron öllum á Skakkalandi upp á ávexti úr afmæliskörfunni.
Við óskum Maroni og fjölskyldu innilega til hamingju með daginn frá okkur öllum á Skakkalandi.