Jan Antoni 3 ára

Jan Antoni 3 ára

Á sunnudaginn, þann 11. September, á hann Jan Antoni afmæli og héldum við upp á afmælið hans hér í Krílakoti í dag.

Jan Antoni málaði á kórónuna sína.

Í ávaxtastundinni sungum við fyrir hann afmælissönginn, hann hefur stækkað í nótt og þetta er afmæliskveðja.

Við flögguðum að sjálfsögðu í tilefni dagsins.

Eftir sönginn fengu allir sér ávexti úr ávaxtakörfunni.

Við óskum Jan Antoni og fjölskyldu hans innilega til hamingju með daginn. 

Kveðja frá öllum í Krílakoti