Á sunnudaginn, þann 11. September, á hann Jan Antoni afmæli og héldum við upp á afmælið hans hér í Krílakoti í dag.
Jan Antoni málaði á kórónuna sína.
Í ávaxtastundinni sungum við fyrir hann afmælissönginn, hann hefur stækkað í nótt og þetta er afmæliskveðja.
Við flögguðum að sjálfsögðu í tilefni dagsins.
Eftir sönginn fengu allir sér ávexti úr ávaxtakörfunni.
Við óskum Jan Antoni og fjölskyldu hans innilega til hamingju með daginn.
Kveðja frá öllum í Krílakoti