Hólmar Elí 2. ára

Hólmar Elí 2. ára

Á föstudaginn héldum við upp á 2. ára afmælið hans Hólmars Elí, en hann átti afmæli þann 9. febrúar.

Hólmar Elí málaði sér kórónu og flögguðum við fyrir hann í tilefni dagsins.

Í ávaxtastundinni sungum við fyrir hann afmælissönginn, hann hefur stækkað í nótt og þetta er afmæliskveðja.

Eftir sönginn bauð Hólmar Elí öllum á Skýjaborg upp á ávexti úr afmælisávaxtakörfunni.

Við óskum Hólmari Elí og fjölskyldu hans til hamingju með daginn frá öllum á Skýjaborg.