Á föstudaginn héldum við upp á 2. ára afmælið hans Hólmars Elí, en hann átti afmæli þann 9. febrúar.
Hólmar Elí málaði sér kórónu og flögguðum við fyrir hann í tilefni dagsins.
Í ávaxtastundinni sungum við fyrir hann afmælissönginn, hann hefur stækkað í nótt og þetta er afmæliskveðja.
Eftir sönginn bauð Hólmar Elí öllum á Skýjaborg upp á ávexti úr afmælisávaxtakörfunni.
Við óskum Hólmari Elí og fjölskyldu hans til hamingju með daginn frá öllum á Skýjaborg.