Hilmar Jóel 3 ára

Hilmar Jóel 3 ára

Í dag 4. febrúar varð Hilmar Jóel 3 ára og héldum við uppá afmælið hans í dag hér í Krílakoti.

Hilmar Jóel málaði sér kórónu og flaggaði íslenska fánanum.

Í ávaxtastundinni sungum við fyrir hann afmælissönginn og hann blés á kertin þrjú.

Eftir sönginn bauð Hilmar Jóel öllum á Hólakoti uppá ávexti úr ávaxtakörfunni.

Við óskum Hilmari Jóel og fjölskyldu hans til hamingju með daginn frá öllum á Hólakoti.