Í dag 4. febrúar varð Hilmar Jóel 3 ára og héldum við uppá afmælið hans í dag hér í Krílakoti.
Hilmar Jóel málaði sér kórónu og flaggaði íslenska fánanum.
Í ávaxtastundinni sungum við fyrir hann afmælissönginn og hann blés á kertin þrjú.
Eftir sönginn bauð Hilmar Jóel öllum á Hólakoti uppá ávexti úr ávaxtakörfunni.
Við óskum Hilmari Jóel og fjölskyldu hans til hamingju með daginn frá öllum á Hólakoti.