Heiðrún Elísa 3 ára

Heiðrún Elísa 3 ára

Í dag 24. nóvember á Heiðrún Elísa 3. ára afmæli og héldum við því upp á daginn hennar.

Heiðrún Elísa málaði sér kórónu og flaggaði íslenska fánanum. Í ávaxtastundinni sungum við fyrir hana afmælissönginn og hún blés á kertin þrjú.

Eftir sönginn bauð Heiðrún Elísa öllum á Skakkalandi upp á ávexti úr afmæliskörfunni.

Við óskum Heiðrúnu Elísu og fjölskyldu innilega til hamingju með daginn frá okkur öllum á Skakkalandi.