Í dag 24. nóvember á Heiðrún Elísa 3. ára afmæli og héldum við því upp á daginn hennar.
Heiðrún Elísa málaði sér kórónu og flaggaði íslenska fánanum. Í ávaxtastundinni sungum við fyrir hana afmælissönginn og hún blés á kertin þrjú.
Eftir sönginn bauð Heiðrún Elísa öllum á Skakkalandi upp á ávexti úr afmæliskörfunni.
Við óskum Heiðrúnu Elísu og fjölskyldu innilega til hamingju með daginn frá okkur öllum á Skakkalandi.