Einar 2 ára

Einar 2 ára

Í dag, 4. maí varð hann Einar 2 ára

og við héldum upp á afmælið hans hér í Krílakoti.

Einar bjó sér til þessa fallegu kórónu, blés á kertin 2

og bauð svo öllum í Skakkalandi upp á ávexti úr afmæliskörfunni.

Einnig fór hann út og flaggaði íslenska fánanum í tilefni dagsins.

Við óskum Einari og fjölskyldu hans innilega til hamingju með daginn.