Í dag, 4. maí varð hann Einar 2 ára
og við héldum upp á afmælið hans hér í Krílakoti.
Einar bjó sér til þessa fallegu kórónu, blés á kertin 2
og bauð svo öllum í Skakkalandi upp á ávexti úr afmæliskörfunni.
Einnig fór hann út og flaggaði íslenska fánanum í tilefni dagsins.
Við óskum Einari og fjölskyldu hans innilega til hamingju með daginn.