Álfrún Mjöll 2 ára

Álfrún Mjöll 2 ára

Þann 4. september varð Álfrún Mjöll 2 ára og héldum við upp á daginn hennar hér í Krílakoti.

Álfrún málaði á kórónuna sína og við flögguðum íslenska fánanum henni til heiðurs.

Í ávaxtastundinni sungum við fyrir hana afmælissönginn og eftir

 sönginn bauð hún öllum á Skakkalandi upp á ávexti úr ávaxtakörfunni.

Við óskum Álfrúnu og fjölskyldu hennar til hamingju með daginn. 

Kveðja frá öllum í Krílakoti.