Þann 4. september varð Álfrún Mjöll 2 ára og héldum við upp á daginn hennar hér í Krílakoti.
Álfrún málaði á kórónuna sína og við flögguðum íslenska fánanum henni til heiðurs.
Í ávaxtastundinni sungum við fyrir hana afmælissönginn og eftir
sönginn bauð hún öllum á Skakkalandi upp á ávexti úr ávaxtakörfunni.
Við óskum Álfrúnu og fjölskyldu hennar til hamingju með daginn.
Kveðja frá öllum í Krílakoti.