Alexandra Björk 1 árs

Alexandra Björk 1 árs

Í dag, þann 7. apríl, varð Alexandra Björk 1 árs og héldum við upp á daginn hennar hér í Krílakoti í morgun.

Alexandra Björk málaði á kórónuna sína og setti upp í tilefni dagsins.

Í ávaxtastundinni sungum við fyrir hana afmælissönginn ásamt fleiri lögum.

Eftir sönginn bauð hún öllum á Skýjaborg upp á ávexti úr ávaxtakörfunni.

Við óskum Alexöndru Björk og fjölskyldu hennar innilega til hamingju með daginn. 

Kveðja frá öllum í Krílakoti