Í dag, þann 7. apríl, varð Alexandra Björk 1 árs og héldum við upp á daginn hennar hér í Krílakoti í morgun.
Alexandra Björk málaði á kórónuna sína og setti upp í tilefni dagsins.
Í ávaxtastundinni sungum við fyrir hana afmælissönginn ásamt fleiri lögum.
Eftir sönginn bauð hún öllum á Skýjaborg upp á ávexti úr ávaxtakörfunni.
Við óskum Alexöndru Björk og fjölskyldu hennar innilega til hamingju með daginn.
Kveðja frá öllum í Krílakoti