Víóla Mjöll 3 ára

Víóla Mjöll 3 ára

Á morgun þann 24. nóvember verður Víóla Mjöll 3 ára og héldum við uppá afmælið hennar í dag hér í Krílakoti.

Víóla Mjöll málaði sér kórónu og flaggaði íslenska fánanum.

Í ávaxtastundinni sungum við fyrir hana afmælissönginn og hún blés á kertin þrjú.

Eftir sönginn bauð Víóla Mjöll öllum á Hólakoti uppá ávexti úr ávaxtakörfunni.

Við óskum Víólu Mjöll og fjölskyldu hennar til hamingju með daginn frá öllum á Hólakoti.