Viktoría Fönn 4ára

Viktoría Fönn 4ára

Viktoría Fönn varð 4 ára í dag 11. desember og óskum við henni til hamingju með daginn. Við byrjuðum daginn á því að útbúa kórónu síðan fórum við út og flögguðum í tilefni dagsins.  Eftir hópastarf bauð hún upp á ávexti og síðan var sungið fyrir hana í tilefni dagsins. Einnig var hún þjónn dagsins.