Vetrarleikum frestað

Vetrarleikum frestað

Komið sæl

Ég verð því miður að tilkynna að vetrarleikunum er frestað.

Starfsmenn frá fjallinu hafa séð um að troða fyrir okkur Kirkjubrekkuna ár hvert og erum við þeim afar þakklát enda brekkan oft ekki verið góð til vetrarleika, snjólaus að hluta eftir hlýja vinda, svell á pörtum og harðir skaflar.

Þannig er staðn í Kirkjubrekkunni núna...... en þegar starfsmenn á troðaranum voru á leið til að lagfæra brekkuna í kvöld, bilaði hann og haggast ekki þrátt fyrir tilraunir til viðgerða.

Við höfum því ákveðið að fresta leikunum að þessu sinni en erum að vinna að öðru plani til að gera morgundaginn eins eftirminnilegan og mögulegt er enda bíða börnin spennt, sérstaklega þau elstu.

Bestu kveðjur og endilega látið berast ykkar á milli

Kveðja Drífa