Vetrarleikar Krílakots og Fagrahvamms

Vetrarleikar Krílakots og Fagrahvamms

Hinir árlegu vetrarleikar Krílakots og Fagrahvamms verða haldnir á morgun, fimmtudag, kl. 10:00 í kirkjubrekkunni, ef veður leyfir. Heiðursgestur leikanna verður Felli lögga og mun hann setja leikana með því að renna sér fyrstu ferðina.

Vinabekkur leikskólanna úr Dalvíkurskóla, 5. bekkur, mætir á svæðið, tekur þátt og aðstoðar börnin. Að lokum fara allir yfir í Safnaðarheimili og fá sér heitt kakó og kringlur.

Þeir foreldrar sem vilja og geta, eru velkomnir að mæta og aðstoða börn sín á leikunum.

Heiðursgestur Vetrarleikanna síðastliðið ár var Hilmar Guðmundsson, forseti bæjarstjórnar.

Forseti bæjarstjórnar stoltur með viðukenningu fyrir þátttöku í leikunum.