Valur Hugi 3 ára

Valur Hugi 3 ára

Í dag 30. maí varð Valur Hugi 3 ára og héldum við upp á daginn hans hér í Krílakoti í dag.

Valur Hugi málaði á kórónuna sína og við flögguðum íslenska fánanum honum til heiðurs.

Í ávaxtastundinni sungum við fyrir hann afmælissönginn og eftir

sönginn bauð hann öllum á Skakkalandi upp á ávexti úr ávaxtakörfunni.

Við óskum Vali Huga og fjölskyldu hans til hamingju með daginn. 

Kveðja frá öllum í Krílakoti.