Vala Katrín 6 ára

Vala Katrín 6 ára

Í dag 29. maí á Vala Katrín 6 ára afmæli og af því tilefni héldum við veislu hér í Kátakoti.

Vala Katrín bjó sér til fallega kórónu, blés á kertin 6 og bauð svo öllum í Sólkoti uppá ávexti úr afmæliskörfunni.

Að veislu lokinni fór hún út og flaggaði fánanum í tilefni dagsins.

Við óskum Völu Katrínu og fjölskyldu hennar innilega til hamingju með daginn.

Bestu kveðjur frá öllum í Kátakoti.