Unnur María 2 ára

Unnur María 2 ára

Í dag héldum við upp á 2 ára afmælið hennar Unnar Maríu. Unnur María málaði á flottu kórónuna sína og flaggði íslenska fánanum í tilefni dagsins með Rúnari Baldvini sem einnig á afmæli í dag. Í ávaxtastundinni sungum við fyrir hana afmælissönginn, hún hefur stækkað í nótt og þetta er afmæliskveðja. Eftir sönginn fengu sér allir ávexti úr ávaxtakörfunni.

Við óskum Unni Maríu og fjölskyldu hennar innilega til hamingju með daginn. Bestu kveðjur frá öllum í Krílakoti.