Unnar Marinó 4 ára

Unnar Marinó 4 ára

Í dag 14. febrúar varð Unnar Marinó 4 ára og héldum við uppá afmælið hans í dag hér í Krílakoti.

Unnar Marinó málaði sér kórónu og flaggaði íslenska fánanum.

Í ávaxtastundinni sungum við fyrir hann afmælissönginn og hann blés á kertin fjögur.

Eftir sönginn bauð Unnar Marinó öllum á Skakkalandi uppá ávexti úr ávaxtakörfunni.

Við óskum Unnari Marinó og fjölskyldu hans til hamingju með daginn frá öllum á Skakkalandi.