Úlfhildur Embla 4.ára

Úlfhildur Embla 4.ára

Í morgun héldum við upp á afmælið hennar Úlfhildar Emblu en hún varð 4. ára í gær.  Það fyrsta sem hún gerði var að setja upp kórónuna sem hún var búin að búa sér til. Síðan fór hún út og flaggaði og bauð öllum upp á ávexti. Í ávaxtastundinni sungu allir afmælissönginn fyrir hana í tilefni dagsins. Einnig var hún þjónn dagsins. Við óskum henni innilega til hamingju með daginn frá okkur öllum á Skakkalandi.