Til hamingju með daginn

Til hamingju með daginn

Í dag er Dagur leikskólans og höldum við hann hátíðlegan eins og fram hefur komið. Í dag fór hún Ágústa ásamt nokkrum börnum á fund bæjarstjóra, hennar Svanfríðar, og færði henni skjal með skemmtilegum gullkornum frá leikskólabörnum. Þess má geta að fulltrúar frá öllum leikskólunum hjá Dalvíkurbyggð fóru saman á fund Svanfríðar og fréttamaður frá DB blaðinu kom og tók myndir af athöfninni.

Hér má sjá nokkrar myndir frá athöfninni: