Þorrablót

Þorrablót

Heimasíðan hefur verið í smá rugli og sameinaðist síðu Leikbæjar í smá tíma en nú sýnist okkur allt vera komið á réttan veg. Síðastliðinn föstudag var þorrablót í Krílakoti. Borðaður var þjóðlegur matur af ýmsu tagi, nýr og súr, og þótti börnum og starfsfólki hann mis góður eins og myndirnar bera með sér. Sungin voru þorralög yfir borðhaldi og skemmtu allir sér konunglega.