Söngfundur í Krílakoti

Söngfundur í Krílakoti

Á föstudaginn var söngfundur hjá okkur í Krílakoti. Við buðum foreldrum barna á Skýjaborg að taka þátt í söngfundinum og gafst það vel. Hafliði Ólafsson kom til okkar með nikkuna sína og spilaði undir sem var virkilega ánægjulegt.  Takk fyrir skemmtilegan söngfund.