Skipulagsdagur 4. september - leikskólinn lokaður

Skipulagsdagur 4. september - leikskólinn lokaður

Þann 4. september nk. verður skipulagsdagur hér í leikskólanum og þá verður lokað.

Þann dag mun starfsfólk leggja land undir fót og skoða leikskóla á höfuðborgarsvæðinu; Krakkakot á Álftanesi sem er umhversvænn náttúruleikskóli, Bjarma í Hafnarfirði sem er sérhæfður ungbarnaleikskóli, Álfastein í Hafnarfirði þar sem við munum kynna okkur könnunarleikinn og könnunaraðferðina og Stekkjarás sem einnig er í Hafnarfirði, en þar munum við kynna okkur uppeldisfræðilega skráningu og sköpun í starfi.