Sigurpáll Steinar 4. ára

Sigurpáll Steinar 4. ára

Þann 11. mars næstkomandi á Sigurpáll Steinar 4. ára afmæli  og af því tilefni héldum við upp á daginn hans í dag.

Sigurpáll Steinar málaði sér kórónu og flaggaði íslenska fánanum. Í ávaxtastundinni sungum við fyrir hann afmælissönginn og hann blés á kertin fjögur.

Eftir sönginn bauð Sigurpáll Steinar öllum á Hólakoti upp á ávexti úr afmæliskörfunni.

Við óskum Sigurpáli Steinari og fjölskyldu innilega til hamingju með daginn frá okkur öllum á Hólakoti.