Sigurpáll Steinar 3 ára

Sigurpáll Steinar 3 ára

Á  morgun 11. mars verður Sigurpáll Steinar 3 ára en þar sem leikskólinn er lokaður á morgun héldum við upp á daginn hans í dag.  Hann bjó sér til kórónu og fór út og flaggaði íslenska fánanum. Í ávaxtastundinni sungum við fyrir hann afmælissönginn og hann blés á kertin þrjú. Eftir sönginn bauð Sigurpáll Steinar öllum á Hólakoti upp á ávexti úr afmæliskörfunni, einnig var hann þjónn dagsins. Við óskum Sigurpáli Steinari og fjölskyldu innilega til hamingju með daginn frá okkur öllum á Hólakoti.