Sigurður Nói 6 ára

Sigurður Nói 6 ára

Í dag er Sigurður Nói 6 ára. Hann bjó sér til glæsilega kórónu í tilefni dagsins, við sungum fyrir hann afmælissönginn, hann blés á kertin 6, bauð upp á ávexti í ávaxtastundinni (ásamt Antoni Andra og Maríu Aðalrós) og svo flaggaði hann að sjálfsögðu íslenska fánanum. Við óskum Sigurði Nóa og fjölskyldu hans innilega til hamingju með daginn.