Síðasti dagur fyrir sumarfrí!

Síðasti dagur fyrir sumarfrí!

Undanfarna daga hefur verið yndislegt veður og börnin verið dugleg að leika sér úti, en í dag er síðasti dagur fyrir sumarfrí. Vonandi eiga bæði börn og fullorðnir eftir að njóta frísins.

Ég minni foreldra á að á súpudagskvöldinu er öllum leikskólabörnum í Dalvíkurbyggð boðið að syngja á sviðinu. Líkt og í fyrra ætlar Matti (pabbi Sigurðar Páls) að vera með okkur. Þegar frekari tímasetning verður komin á hreint mun ég setja tilkynningu á heimasíðuna.

Hafið það gott í sumar!

Dagbjört