Sara Phim 3 ára

Sara Phim 3 ára

Í dag héldum við upp á 3 ára afmælið hennar Söru Phim en hún á afmæli 5. júní.

Sara Phim málaði á flottu kórónuna sína og flaggaði hún að sjálfsögðu Íslenska fánanum.

Í ávaxtastundinni sungum við fyrir hana afmælissönginn, hún hefur stækkað í nótt og þetta er afmæliskveðja.

Eftir sönginn fengu sér allir ávexti úr ávaxtakörfunni.

Við óskum Söru Phim og fjölskyldu hennar til hamingju með daginn.

Bestu kveðjur frá öllum í Krílakoti.