Ronja 3 ára

Ronja  3 ára

Þann 18. október verður Ronja 3 ára og héldum við upp á afmælið hennar hér í leikskólanum í dag.  Hún byrjaði daginn á því að búa sér til kórónu, bauð öllum upp á ávexti og svo sungu allir afmælissönginn í tilefni dagsins. Einnig fór hún út og flaggaði og var þjónn dagsins.  Við óskum henni til hamingju með daginn frá öllum á Hólakoti.