Rakel Sara 4 ára

Rakel Sara 4 ára

Í dag 16. janúar á Rakel Sara 4 ára afmæli og héldum við upp á daginn hennar.

Rakel Sara málaði sér kórónu og flaggaði íslenska fánanum. Í ávaxtastundinni sungum við fyrir hana afmælissönginn og hún blés á kertin fjögur.

Eftir sönginn bauð Rakel Sara öllum á Skakkalandi upp á ávexti úr afmæliskörfunni.

Við óskum Rakel Söru og fjölskyldu innilega til hamingju með daginn frá okkur öllum á Skakkalandi.